Újéé!! Ætli kjellan sé ekki bara að skella sér suður um helginaa
. Fara svona að skoða Keflavík og læti með Emilíu og Silvíu.
Partí partííí. Vá og það hefur svo sem ekkert annað gerst. Það er
verið að gera eitthva verkefni í PríZund og duglega ég skrifaði
smásögu. Á eftir að skila því. Geri það bara á eftir
. Því það er
ekkert að skrifa þá skelli ég bara sögunna inn
.
Það getur allt gerst!
Þetta var venjulegt
föstudagskvöld. Við stelpurnar vorum að gera okkur tilbúnar fyrir
djamm og svona. Mikið tekið af myndum. Alltaf jafn skemmtilegt að
mála sig og flippa. Hún Rósa var aðal djamm manneskjan. Henni
fannst alltaf jafn gaman að fara í partí og svoleiðis. Í kvöld átti
að fara í partí til Palla, kærasta Rósu. Hann var einn heima. Átti
að vera brjálað stuð. Við vissum allar að mikið yrði drukkið, þar
sem Palli var tveim árum eldri en Rósa og kominn í menntaskóla. En
okkur var sama. Partí var partí. Við vorum allar ennþá í tíunda
bekk og vorum svolítið smeykar við að prófa áfengi þannig að það
var ákveðið að drekka sem minnst til að koma í veg fyrir að
eitthvað myndi gerast. Menntaskólastrákar eru stjórnlausir í
partíum. Við ákváðum allar í sameiningu að passa hver upp á aðra.
Síðan var bara labbað til Palla enda bjó hann nú ekkert langt í
burtu.
Partíið var nú þegar
byrjað. Hávær tónlist heyrðist frá stóru tveggja hæða húsinu sem
Palli bjó í. Við löbbuðum bara beint inn. Máttum það alveg. Allir
voru orðnir ágætlega fullir nema þeir sem voru ,,drivers’’. Það
sást langar leiðir hverjir það voru. Sátu inni eldhúsi að drekka
gos og spila. Ein af okkur fór og settist hjá þeim enda góð stelpa.
Við hinar hurfum á meðan Rósa var að svipast eftir Palla. Hún fann
hann og fór að skemmta sér. Hann Palli var orðinn talsvert fullur
og fór að ýta við Rósu til að fá sér aðeins í glas en hún afþakkaði
alltaf. Hann varð síðan mjög pirraður því að allir voru að gera
grín af því að kærastan hans var sú eina sem drakk ekki. Hann fékk
nóg, rak Tópasflöskuna í andlitið á Rósu og sagði: ,, Drekktu eða
ég er hættur með þér,’’ hún öskraði til baka: ,, Þá erum við ekki
saman lengur!’’ og hljóp út hágrenjandi. Hún hrasaði í tröppunum og
flaug fram fyrir sig. Lenti á hausnum á stéttinni og það heyrðist
brak. Blóð lak á stéttina og hún lá hreyfingarlaus. Palli kom
æðandi út. Í græjunum kom lagið ,, For You I Will’’. Hann sá hvað
hann hafði gert Rósu og féll saman.
Hann lá í rúminu næstu
vikuna og leið ílla. Jarðaförin hennar fór fram í vikunni og hann
Palli gat ekki hugsað sér að mæta. Hann fór samt að leiðinu daginn
eftir með rós ,, Elsku Rósa mín’’ sagði hann með tár í augum. ,, Ég
átti ekki að reyna pína þig til að fá þér. Ég sakna þín svo mikið.
Ég vil ekki lifa lengur. Þú varst hin eina sanna. Ég elska þig.’’
Nú runnu tárin stanslaust niður kinnarnar. Hann mynd sjá eftir
þessu til æviloka.
Móralinn í sögunni
er: Áfengi hefur ekki bara áhrif á þig, líka þá sem eru í kringum
þig.
Smásaga eftir:
Mereniu Kristín
Endilega kommenta um hvað ykkur finnst. En ég er farin
-Merenia's out ;*!
